Sammála þessari greiningu..

Ég tek undir þessa greiningu...ef nást á jafnvægi í þjóðarbúskapnum, verðum við að sýna aga í rekstri ríkissins, og við verðum að hætta að vera með fjárlagahalla...halli er ekkert annað en viðurkenning á því, að börnin okkar geti borgað fyrir sukkið.

Sníðum okkur stakk eftir vexti, og klæðskerum fjárlögin þannig að við skilum afgangi í framtíðinni, óska núverandi stjórnvöldum velfarnaðar í því að koma fjárlagahallanum frá.

Áfram Ísland. 


mbl.is Óráðsía þýðir aukin verðbólga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sagt er að menn  sem berja hausnum  oft við steininn, fái hausverk, ruglist svo endanlega og missi veruleikaskyn. Snúist svo kringum eigið ímyndað skott og gjammi hátt.

Holl lesning gegn áunnum hausverk:

http://www.pressan.is/pressupennar/Lesa_Olaf_MArgeirsson/verdtrygging-eilifdarvelin-sem-brast

Þjóðólfur (IP-tala skráð) 22.10.2013 kl. 19:20

2 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Þvi miður er þá einn galli. Þessi greining segir i raun "það ma aldrei gera neitt nokkurnti,ann fyrir skuldara..... Þvi að þá fer ella til helvítis"

Óskar Guðmundsson, 22.10.2013 kl. 20:27

3 identicon

Þessi fyrirsögn er ekki sæmandi alvöru blaðamennsku, hvað þá fræðimennsku!

Hrúturinn (IP-tala skráð) 22.10.2013 kl. 20:30

4 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Ægir, mér finnst svolítil sjáfstæðislykt af þessum skrifum þínum hér að ofan, en hvað um það.

Auðvita segja þeir í stjórnkerfinu þetta við lýðinn, og lýðurinn kokgleypir það! Eins og þú veist Ægir, þá eru það ekki pólitíkusarnir sem stjórna Íslandi og hafa aldrei gert, hafi ég haft grun um það fyrir hrun, þá fékk ég staðfestingu á því í bankahruninu!

Svo að lokum Ægir, alltaf finnst mér það jafn lúalegt þegar menn skrifa ekki undir nafni, einhver heigulsháttu þar á.

Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 22.10.2013 kl. 21:59

5 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Sæll félagi...það sem ég legg í skrif mín snúa yfirleitt að hagsmunum Íslands umfram allt....það sem ég er að leggja áherslu á, er að hagstjórnin sé í lagi...við Helgi sem komum frá stað þar sem verðmætasköpun hefur verið ofar öllu...viljum og skiljum það er það eins sem dugar, til þess að gera lífið betra.

Kveðja út í eyjar..

Ægir Óskar Hallgrímsson, 22.10.2013 kl. 22:17

6 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Já sæll Ægir, ég er nú flokksbundinn Sjálfstæðismaður, en ég hefði betur sett broskall við orð mín hér að ofan "mér finnst svolítil sjálfsæðislykt af skrifum þínum hér að ofan"

Ég er sammála þér í sambandi við hagstjórn, bara að hún sé gerð af skynsemi, en síðustu ríkisstjórnir hafa að mínu mati forgagnsraðað mjög vitlaust, sem aftur sannar mína kenningu og tilfiningu gagnvart stjórnkefinu, ég er viss um að auðvaldið og embættismenn ráði öllu í stjórnkerfinu!

En hugsaðu þér Ægir, hvað mikil verðmæti skapast hér í Eyjum, og hvað lítið brotabrot skilar sér í vasa Eyjamanna!

Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 23.10.2013 kl. 11:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband