Ekki meiri mútur í boði???

Þetta er stórkostlegt, styrkja bandalagið kommúnista esb hættir mútum, þetta er gott, nú þurfum við einbeita okkur að okkar málum, og gera Ísland enn betra og lækka skuldir Íslands, þannig munu skapast aðstæður fyrir okkur til þess að bæta hag landsmanna, næsta mál er vonandi að tækla vogunarsjóðina, og svo lækka skuldir íslenskra heimila.

við íslendingar eigum að snúa okkur til vesturs, og því ber að fagna að sjá forsætisráðherra skuli hafa heimsótt kanada í síðustu viku, og vonandi að við felum Viðskipti við kanada til muna á öllum sviðum, en gott að vita hvar við stöndum í utanríkismálum...eins langt frá esb og hægt er!!

áfram Ísland. 


mbl.is ESB skrúfar fyrir IPA-styrkina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar

 Þetta er ekki mútufé, þetta er styrkur ætlaður til að dekka að hluta til kostnað þjóða við að aðlaga sig að ESB.  Þar sem ríkisstjórnin hefur illu heilli ákveðið að eiga frekar samstarf við einræðisþjóðir í Asíu heldur en lýðræðisþjóðir Evrópu þar sem mannréttindi og virðing fyrir fólki og náttúru eru í hávegum höfð þá eru þessir styrkir að sjálfsögðu settir á frost  --- þangað til þessari óstjórn verður hent útúr alþingishúsinu og þjóðin grátbiður ESB að taka við okkur - eftir næsta sjallahrun.

Óskar, 8.8.2013 kl. 11:31

2 identicon

um 90% okkar útflutnings fer til landa ESB í dag.. Heldur þú að Kanada taki það bara að sér að kaupa það í staðinn?

Merkileg þessi veruleikafirring sem virðist hafa gripið marga hér á landi...

Þess má geta að stór hluti þessa mútufés átti að fara í það að koma á eftirlitskerfi með matvælaframleiðslu á íslandi - en það er sjálfsagt ekkert sem við höfum not fyrir

Jón Bjarni Steinsson (IP-tala skráð) 8.8.2013 kl. 12:41

3 identicon

Nú lendir þessi kostnaður bara á okkur skattgreiðendum. Því vegna ESS þurfum við hvort eð er að gera allar þessar breytingar og uppfærslur. En vegna þess að nú tengjast þær ekki aðildarumsókn þá hættir ESB að borga þær og nokkur þúsund af þínu skattfé, sem hefði verið hægt að nota í heilbrigðiskerfið eða greiða niður skuldir, fara nú í þessi verkefni.

"Vogunarsjóðirnir" eru að stórum hluta til Bresk sveitarfélög og sparifjáreigendur, Skandínavískir ellilífeyrisþegar og einstaklingar sem ekkert hafa til sakar unnið annað en að eiga íslenskar krónur þegar hrunið varð. En þegar fyrirhugaður er stórfelldur þjófnaður á eignum fólks þykir heppilegast að byrja á því að gefa þeim neikvæðan stimpil. Svipað og þegar nasistar ásældust eignir Gyðinga.

Espolin (IP-tala skráð) 8.8.2013 kl. 18:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband