Enda skynsamur maður...

Enn og aftur bregst Forsetinn okkar vel og rétt við...þessi ákvörðun er rétt..og gerir það að verkum að við fáum tekjur af auðlindinni..sem er það sem þjóðin vill.

Áfram Ísland.


mbl.is Forsetinn staðfestir lög um veiðigjald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þar bjargaði hann landinu fyrir horn ,enn einu sinni ...flottur !!..

Ragnhildur H. (IP-tala skráð) 9.7.2013 kl. 16:30

2 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Já sammála Ægir.

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 9.7.2013 kl. 16:39

3 identicon

Því sannleikurinn er of hættulegur, enda stuðningsmaður heimssýnar.

Captain Obvious (IP-tala skráð) 9.7.2013 kl. 16:40

4 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Byrja nafnlausu bloggararnir...hvaða sannleikur...erum við ekki að tala um það að þjóðin fái auðlindarentu!!

Ægir Óskar Hallgrímsson, 9.7.2013 kl. 16:48

5 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Þarna tryggði forsetinn að tekjurnar af auðlindinni verða þremur milljörðum minni bara á þessu ári en annars væri.

Nú er það ljóst að Ólafur Ragnar er ekki forseti allrar þjóðarinnar heldur strengjabrúða kvótagreifa rétt eins og ríkisstjórnin. Þarna tók hann hagsmuni kvótagreifa fram yfir almannahagsmuni. Hafi hann skömm fyrir.

Svo er alveg ljóst að þeir sem kusu Ólaf Ragnar í seinustu kostningum til að tryggja sér öryggisventil gagnvart stjórnvöldum hafa keypt köttinn í sekknum.

Sigurður M Grétarsson, 9.7.2013 kl. 16:48

6 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Þarna tryggði Ólafur því að veiðigjaldið yrði (og þá 10 milljörðum meira í kassann en ella) að veruleika.

Nafnlausu sauðirnir þurfa að reyna að rífa allt í sig... vest að þeir eru eins og púkinn á fjósbitanum.... nema hvað þeir eru að tegja egin skítsokk.

Óskar Guðmundsson, 9.7.2013 kl. 17:01

7 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Sæll félagi.  Veit að það er lítil skynsemi í því,  að ríkissjóður verði af 10 milljörðum 2013 og 2014.  Nógur virðist nú fjárhagsvandinn vera samt,  ekki rétt Ægir !

Þorkell Sigurjónsson, 9.7.2013 kl. 17:24

8 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Ef lögum núverandi ríkisstjórnar hefði verið hafnað hefði aðeins þurft að skerpa aðeins á heimildum veiðigjaldanefndar til að tekjurnar hefðu orðið 13 milljarðar í stað 10 milljarða með þessu frumvarpi. Það að samþykkja lögin leiðir því af sér að ríkissóður fái minni tekjur en ella en ekki meiri tekjur eins og stjórnarþingmenn og aðrir stuðningsmenn ríksstjórnarinnar eru að reyna að ljúga að fólki.

Sigurður M Grétarsson, 9.7.2013 kl. 19:39

9 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Sælir félagar..eru þið ekki að átta ykkur á stöðunni...ef forsetinn hefði synjað þessu..ok...hefði enginn auðlindarenta fengist...hitt frumvarpið..þetta gallaða og gersamlega ónotarhæft...hefði aldrei komið til kastanna...svo það var betra að fá einhverja rentu.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 9.7.2013 kl. 22:31

10 identicon

Ægir, með þessum rökum er hægt að kúga okkur pöpulinn. Af hverju ekki að lækka um nokkra milljarða í viðbót? Er það ekki betra en að fá ekki neitt?

Björn Viðarsson (IP-tala skráð) 9.7.2013 kl. 23:07

11 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Nei Bjössi...hitt frumvarpið kom ekki til greina....það var ekki tilbúið..óklárað...eins og allt annað eftir síðustu stjórn...þess vegna er betra að fá þetta frumvarp..og fá eitthvað í kassann!!

Ægir Óskar Hallgrímsson, 9.7.2013 kl. 23:15

12 identicon

Þetta er fyrirsláttur. Mönnum fannst gjaldið of hátt og eiga að hafa manndóm til að segja það berum orðum en ekki rugla í fólki með tækniatriðum sem vel eru yfirstíganleg. Væri nú líklegt að gjaldtaka af okkur litla fólkinu yrði lækkuð vegna tæknigalla í lagasetningu?

Björn Viðarsson (IP-tala skráð) 9.7.2013 kl. 23:26

13 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Ægir. Það er haugalygi að ekki hefði verið hægt að innheimta neitt viðigjald ef nýja frumvarpið hefði ekki verið samþykkt. Það þurfti ekki að gera neitt annað en að skerpa á nokkrum heimildarákvæðum til að hægt hefði veri að innheimta 10 milljörðum króna hærri gjöld á þessu ári og því næsta. Þetta eru því falsrök gegn þeirri kröfu að halda sig við gömlu lögin.

Sigurður M Grétarsson, 10.7.2013 kl. 11:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband