Mun meira áfall fyrir ESB en Ísland.

Þetta eru gríðarleg vonbrigði fyrir ESB..að Ísland hafi séð af sér og tekið rétta afstöðu til þessa mála sem snýr að því að draga þessa umsókn til styrkjabandalagsins til baka...og fara að hlúa að málum Íslands.

Ég mæli með því að við drögum all verulega úr útgjöldum til utanríkismála...við erum að setja um þessar mundir um 11 milljarða í þetta ráðuneyti..og mætti alveg klárlega skera þetta niður um 5 milljarða sem gætu nýst hér heima fyrir 5 milljarðar á 10 árum...eru 50 milljarðar..það mætti gera eitthvað við þá fjármuni.


mbl.is Áfall fyrir Evrópusambandið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Til dæmis lækka skuldir heimila...

Guðmundur Ásgeirsson, 22.5.2013 kl. 21:20

2 identicon

Besta leiðin til að lækka skuldir heimila er að hætta þessari eilífu skuldsetningu og hætta lánafíkn sinni. Spurning hvenær hófsemisviðmið verði aftur talin til dyggða hérlendis.

Páll (IP-tala skráð) 22.5.2013 kl. 21:51

3 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Ég held nú að fullyrðingin um að það að aðildarumsókn Íslands að ESB sé eitthva áfall fyrir ESB sé talsverðum orðum aukið svo vægt sé til orða tekið. Höfum það í huga að það var Ísland sem sótti um aðild að ESB með hagsmuni íslensku þjóðarinnar að leiðarljósen en ekki öfugt. Ríki ESB telja eðlilegt að Ísland sem lýðræðisríki í Evrópu fái aðgang að sambandinu sækist það eftir því en það er engin sérstakur akkur fyrir ESB að öðru leyti að fá Ísland inn.

Vissulega hefur það ákveðna kosti fyrir ESB að Ísland verði aðildarríki en þeir spila ekki stóra rullu hjá þeim. Ávinningur Íslands að aðild eru hins vegar umtalsverðir.

Sigurður M Grétarsson, 22.5.2013 kl. 23:53

4 Smámynd: Theódór Norðkvist

Held það sé enginn að segja að hlé eða stöðvun viðræðna sé efnahagslegt áfall fyrir ESB. Það er hinsvegar ímyndarlegt áfall - það hlýtur að vera kjaftshögg fyrir þetta bandalag, að þjóð sem hrundi eins og spilaborg í fjármálakreppunni skuli ekki telja aðild að ESB vera þá stoð og styttu efnahagslega, sem bandalagið vill þykjast vera.

Theódór Norðkvist, 23.5.2013 kl. 01:57

5 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Það hefur oft gerst að þjóðir í aðildarviðræðum við ESB hafi gert hlé á þeim. Oft hafa þær þó orðið aðildarþjóðir að lokum. Þetta er 100% íslensk pólitík og að mestu byggð á þjóðerniskennd og tilfinninngum fremur en mati á kostum og göllum ESB aðildar. Enda sést það best á því hversu mikið ESB andstæðingar hamra á rökum um fullveldi og öðrum þjóðernisrökum í stað efnahagslegra raka. Það stafar einfaldlega af því að ef umræðan fer út í efnahagslegu rökin þá eiga ESB andstæðingar enga möguleika í þeirri umræðu svo fremi að hún byggi á staðreyndum.

Sigurður M Grétarsson, 23.5.2013 kl. 07:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband