Lækka skatta....

Þetta er rétt hjá formanni Sjálfstæðisflokks..við verðum að lækka álögur á fólk í landinu...það myndi örva efnahag Íslands til lengri tíma...með aukinni neyslu almennings...ég mæli með tvennu sem yrði fljótt að skila sér til allra.

Lækkum Tryggingagjald.

Algert lykilatriði er að lækka tryggingargjaldið sem er orðið of hátt..að ég tel um 7,9%..lækkum það niður í 3%...sem gerir rekstur fyrirtækja mun betri.

Hækkum skattleysismörkin

Hækkum skattleysismörkin upp í 150.000 til að byrja með...alveg með ólíkindum að fólk þurfi að borga skatt af lægri upphæð.


mbl.is Nauðsyn að lækka skatta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Miklu einfaldari lausn, leggja niður tryggingargjaldið, afnema skattleysismörkin og skattaþrep og lækka tekjuskattsprósentuna verulega. Einfaldar skattkerfið gríðarlega, allir borga sama skatt og fólk verður mun tregara til að samþykkja sukk og svínarí hjá ríkinu.

Gulli (IP-tala skráð) 16.2.2013 kl. 11:21

2 identicon

Það má lækka skatta. Ágætt væri að byrja á að lækka álögur á eldsneyti. Þetta er komið út í geðveiki fyrir löngu síðan.

Einar (IP-tala skráð) 16.2.2013 kl. 12:09

3 identicon

Geri ráð fyrir að menn ætli þá að skera niður einnig enda er íslenska ríkið vart lánshæft.

Það hefur ekki örlað á niðurskuðarhugmyndum.

http://gallery.datamarket.com/fjarlagafrumvarp_2013/

Heildarskattekjur ná varla 500 miljörðum.

1. Verðfall á fiskafurðum, 2. Hækkun á olíu á heimsmarkaði er spáð. 3. Verðfall á áli. 4. Fólk er að klára auka lífeysisparnað sinn. 5. Skilanefndir eru að klára sitt verk og vel launuð störf leggjast þá af. 6. Bankakerfið er ca. 3 sinnum of stórt fyrir hið agnarsmáa hagkerfi Íslands.

7. Að flytja inn olíu á niðurgreiddu krónugengi og lækka á því álögur eykur ekki á þjóðarframleiðslu Íslands enda heimskuleg aðgerð. Skynsamlegra væri að hækka bensín og draga þannig úr innflutningi og þannig styrkja krónuna.

Trúverðugleiki Sjálfstæðismanna eins og annara flokka er lítill og ekki eykst hann með lýðskruminu.

Gunnr (IP-tala skráð) 16.2.2013 kl. 13:06

4 identicon

Það er ekkert mál að lækka skatta en því þurfa að fylgja konkret niðurskuðarhugmyndir. Það vantar um 50-60 miljarða og hugsanlega enn meira til að þetta gangi upp. Skattalækkanir koma síðan til viðbótar enda skila litlu til stækkunar á hagkerfinu.

Merkilegt að þeir sem segja að íslenska krónan sé okkar lífbaugja en gugna á því sem þarf. Framtíðin er haftakróna og flotkróna með lágu og sveiflukendu gengi og afar háum vöxtum enda mun landið augljóslega næstum stöðvast af fjármagnsskorti. Það var hægt að niðurgreiða vexti (þeas lægri en verðbólga) á árum áður en sá tími er liðinn alla vega ef við ætlum út úr höftunum. Þá er ýtt á SEND takkann og fjármagnið flæðir burtu meðan flæðir undan íslensku krónunni.

Gunnr (IP-tala skráð) 16.2.2013 kl. 13:13

5 identicon

Ríkið tekur stóran hluta af hverjum seldum bensínlítra í skatt og á meðan heimsmarkaðsverð er svona hátt að þá hafa komið upp m.a þær hugmyndir að ríkið minnki (tímabundið?) við skattheimtuna af eldsneytinu.

Hæpið að svo verði en skiljanlegt að fólk velti þessu fyrir sér þegar verð á bensíni og díselolíu hefur aldrei verið hærra hér á landi. Hrun gjaldmiðilsins spilar þar auðvitað inn í en eftir hrun hefur ítrekað verið hækkaður skattur á eldsneyti, eins og sykur og fleira.

Ég hef aldrei og mun aldrei kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Ef þessu var beint til mín með sjallana og trúverðugleikann.

Það er bara ekki annað en hægt að velta fyrir sér hvort ekki sé komið nóg í skattheimtu. Nú verða að koma aðrar lausnir.

Einar (IP-tala skráð) 16.2.2013 kl. 13:50

6 identicon

Það er staðreynd að ríkið tekur stóran hluta í skatt en raunar lægri hluta en nágrannaríkin þess fyrir utan er þetta selt á niðurgreiddu krónuverði því að raunverð íslensku krónunnar eru miklu lægri.

Það er ekkert mál að lækka skatta vandamálið er að skera niður og það þarf að gera bæði annað er ekkert annað en lýðskrum.

Gunnr (IP-tala skráð) 16.2.2013 kl. 16:18

7 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Strákar...með lækkun tryggingagjalds og hækkun skattleysismarka...mun neysla almennings aukast...og hvert fer sá peningur..ríkið mun ef eitthvað er..fá meira í kassann...í gegnum vsk kerfið...neyslan mun aukast það mikið..og fyrirtæki með aukinni neyslu...og lækkandi tryggingagjaldi....myndi atvinnuleysi minnka umtalsvert.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 16.2.2013 kl. 17:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband