Ætlar þetta fólk aldrei að læra????

Virðing Alþingis hefur verið á hraðri niðurleið...undanfarin ár...nú er svo komið að virðing hins almenna borgara, sem borgar þessu fólki laun...er alveg örugglega ekki að fara að hækka í áliti....til þess að einhver fái virðingu..verður sá/sú að vinna til þess...virðing er ekki eitthvað sem er hægt að kaupa út úr búð....þú ávinnur þér traust og virðingu...traust og virðing er eitthvað sem þarf að bæta á þessum vinnustað..þarna inni er margt gott fólk...en margir sauðir....sem er ömurleg niðurstaða.....þingmenn takið ykkur tak!!

www.xg.is


mbl.is Sakar þingmenn um „skrílslæti“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

það væri ærin ástæða að rjúfa þing og hreins til i þingsölum .....eg held að spillingin þar se dypri og verri en eðlilegt getur talist ..þó margt se slæmt utann veggja þings ...þá er þetta ÞJÓÐÞING ISLENDINGA  !!  

Ragnhildur (IP-tala skráð) 20.11.2012 kl. 22:33

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála, það þarf að hreinsa fjórflokkinn út af þingi allavega svo þeir geti ekki myndað meirihluta.  Þetta er komið nóg.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.11.2012 kl. 23:03

3 identicon

ÆÆ Ásthildur þetta hefur því miður ekkert með fjórflokkinn að gera í þessu tifelli er verið að tala um þingmann hreyfingar sem er á facebók í vinnunni að níða niður skoðanir þingmanns sem þorir að hafa skoðanir í stað þess að ræða þær málefnalega úr ræðustól

sæmundur (IP-tala skráð) 20.11.2012 kl. 23:21

4 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Ægir þetta er ekki alveg nákvæmega rétt því þú sem kosið hefur persónu gerir ráð fyrir að hún beri virðingu fyrir öðrum.
Þú ávinnur þér ekki virðingu heldur er sú persóna sem ber virðingu fyrir einhverjum hún ber virðingu fyrir sjálfri sér til að geta borið virðingu fyrir öðrum.

Það segir sig sjálft að fólk ber ekki virðingu fyrir sjálfu sér í því sem það segir og ber ávirðingar á annað fólk ef það er ekki því sammála.

Guðni Karl Harðarson, 21.11.2012 kl. 00:40

5 identicon

Mér finnst þetta ömurlegar fréttir, sérstaklega í ljósi þeirrar umræðu sem verið hefur um einelti í samfélaglinu. Það er mikil hræsni að gagnrýna einelti einn dag en gera svo grín að samstarfsfólki sínu þann næsta. Slíkir þingmenn eru ekki starfi sínu vaxnir og eru slæmar fyrirmyndir fyrir æsku þessa lands.

Guðrún (IP-tala skráð) 21.11.2012 kl. 00:43

6 identicon

Virðing Alþingis er ekki á uppleið meðan fólk eins og Vigdís Hauksdóttir sitja þar.

E (IP-tala skráð) 21.11.2012 kl. 05:04

7 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Það þarf að moka út skítnum vitað það lengi og komin tími til vegna þess að húsið þolir varla meira af honum!

Sigurður Haraldsson, 21.11.2012 kl. 05:24

8 identicon

Finnst engum athugavert að þingmenn séu bara á facebook í vinnunni? Það er fullt af fyrirtækjum sem hefur lokað á aðgang að facebook á vinnustöðum og ég held að Alþingi ætti að íhuga alvarlega að gera slíkt hið sama. Þingmenn eru okkar starfsmenn og ég er ekki sátt við það að vera með þetta lið á launum við að hanga á netinu í stað þess að vinna vinnuna sína.

SG (IP-tala skráð) 21.11.2012 kl. 08:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband