Það missa allir spón sinn....

Það missa allir eitthvað af sínum hluta í öllum landshlutum...ég er þannig gerður..að þú skemmir ekki það sem gott er...auðvitað er þetta kerfi ekki 100%...en þessi stjórn er alls ekki að bæta kerfið með þessu frumvarpi..með þessu frumvarpi..tekurðu frá þeim sem eru með..og færir öðrum.

Væri ekki nær að auka við kvótann...og láta hluta aukningunnar fara til þessara strandveiða...ég get með engu mót séð hver græðir á þessu breytta kerfi...nú þegar eru of margir bátar!!


mbl.is Segja aflaheimildir á Vestfjörðum skerðast um 3700 lestir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Mér skilst að nú eigi að auka eitthvað við aflaheimildirnar. Þá bregður svo við að útvegsmenn segja allt í kringum landið að afli muni skerðast. Þar á ofan eru sendar úr afar alvöruþrungnar yfirlýsingar um tugi og hundruð starfa sem tapast muni.

Mér dettur í hug að þessi aflaaukning muni að mestum hluta verða á Hveravallasvæðinu og að bakarar og rafvirkjar fái að spreyta sig á veiðiskapnum.

Án gamans. Það er auðvitað grafalvarlegt þegar landssamtök útvegsmanna og stærsti stjórnmálaflokkur landsins hegða sér og tala eins og örgustu afglapar í umræðu um eitt þýðingarmesta hagsmunamál þjóðarinnar.

Hvað fékk þig til að skrifa þessa hringavitleysu?

Sá kvóti sem nú er deilt um, var hann þá ekki af neinum tekinn?

Er þér ekki kunnugt um heil sjávarpláss sem eru kvótalaus? Fór fiskurinn til himna?

Hefur LÍÚ/Hafró tekist að auka aflaheimildir á tæpum 30 árum? nei, þær hafa rýrnað um 2/3 við þessa vísindastjórnun.

Frumvarp Jóns Bjarnasonar er ekki gott frumvarp og gengur of skammt en það er þó spor í rétta átt.

Árni Gunnarsson, 5.6.2011 kl. 16:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband