Borga hvað??

Við borgum þetta ekki neitt..ég ætla rétt að vona að forsetinn standi með þjóð sinni í þessu máli..en ekki stjórnmálastéttinni..glæpamennirnir niður á þingi eru búnir að gera nóg..ef þeir taka þetta úr sínum vösum er mér sama..

Vil að forsetinn láti kjósa um þetta..

Forsætisráðherra sagði við þjóðina..að ekkert svigrúm væri til afskrifta lána...en viku seinna er hún tilbúin að borga nokkur hundruð mijjarða til annars fólks...hún er gersamlega kolbiluð þessi flugfreyja...tölum bara manna mál.


mbl.is Greiðslur hefjast í júlí 2016
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gamla ljóta grána

meistari spuna og arðrána!

Óskar Guðmundsson (IP-tala skráð) 9.12.2010 kl. 17:40

2 identicon

Ef þú ert þeirrar skoðunnar að íslenska ríkið eigi ekki að borga Icesave skuldina, hvað finnst þér um þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar sem var tekin rétt eftir hrun að ábyrgjast allar innistæður í íslenskum bönkum?

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 9.12.2010 kl. 18:15

3 Smámynd: Óskar

og hvað finnst þér um gjaldþrot seðlabankans uppá 500 milljarða, varst þú spurður hvort þú ættir að fá þann reikning frá D.O. ?  Nú eða bótasjóðinn í Sjóvá, ríkið varð að setja 12 milljarða þangað, fékkst þú að kjósa um það ?  Nei, þetta er því miður viðbjóðsleg arfleifð eftir sjálfstæðisflokkinn sem þjóðin neyðist til að taka ábyrgð á.  Geri hún það ekki mun það kosta miklu meira.

Óskar, 9.12.2010 kl. 18:25

4 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Fyrst fólk er svo áþjátt í að borga annarra manna skuldir...viljið þið þá bara ekki borga mínar skuldir einnig!!..ég er til.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 9.12.2010 kl. 18:51

5 Smámynd: Óskar

Ægir Óskar ertu spurður hvort þú viljir borga skatta ?  Ertu spurður hvort þinir skattar eigi að fara í að fjármagna einhver göng fyrir krummaskuð sem þú munt aldrei keyra ?  Færð þú þjóðaratkvæðagreiðslu um það ?  Sorrý, þetta fylgir því bara að vera Íslendingur og ábyrgðin á þessu klúðri er alfarið hjá sjálfstæðisflokknum.

Takk sjálfstæðisflokkur fyrir Icesave.    Sjalli gaf sjöllum landsbankann , honum var stjórnað af sjöllum og sjallar stofnuðu Icesave og sjallar rændu bankann innanfrá og sjallar settu svo bankann á hausinn.

Sjallar þvælast svo fyrir björgunarstarfinu í þessu landi, m.a. með því að tefja icesave vandamálið sem þeir komu þjóðinni í hvað eftir annað.   Það er engin önnur leið til en að semja um þetta, nú loks liggur ásættanlegur samningur á borðinu og EF SJALLAR KOMA Í VEG FYRIR AÐ HANN GANGI Í GEGN,  ÞÁ VERÐA AFLEIÐINGARNAR ALFARIÐ Á ÞEIRRA ÁBYRGÐ.

Óskar, 9.12.2010 kl. 18:58

6 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Það er ekkert verið að tala um þessa vitleysu sem þú nefnir..í þessu máli er verið að tala um stórt mál...sem er verið að setja á herðar Íslendinga..og ef Íslendingar eiga að borga þetta..hljóta þeir eitthvað með málið að segja...ég hafna þessu Icesave III með öllu..og vísa þessu til föðurhúsanna!

Ægir Óskar Hallgrímsson, 9.12.2010 kl. 19:10

7 identicon

Þegar Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands setti hryðjuverkalögin, samin fyrir óvini Hins Frjálsa Heims, á þá eitt hæststandandi land í heiminum, siðferðilega sem á öðrum sviðum, Ísland, með lengstu alþingishefð í veröldinni..............herlaust land sem var á toppnum á Global Peace Index sem friðsælasta og mest friðelskandi land heims......

þá sveik hann Vestræna menningu eins og hún lagði sig. Lagði lóð á vogarskálar þeirra sem vilja tortýma henni með að gera lítið úr hryðjuverkalögunum, og lagði eyðingaröflunum lið með að bera þau saman við 30 misvitra íslenska bankamenn.

Að láta þjóðina alla gjalda siðferðis örfárra óvinsælla bankamanna er sama "lógík" og var að baki Helförinni, sem nazistar, óvinir Vestrænnar menningar eins og Gordon Brown og terroristarnir vinir hans sem þakka honum fyrir að vera komnir á blað með Íslandi og þar með hvítþvegnir, töldu sanngjarna laus við hinu svokallaða "gyðingavandamáli".

Ef Íslendingar taka á sig þessar skuldir munu þeir hljóta slæmt karma fyrir, afþví skuldaþrældómur er helsta ástæða sárrar fátæktar fátækustu ríkja heims, en ekki skortur á matvælum eða annað. Þeir sem ekki þekkja til ættu að kynna sér "Make Poverty History" átakið sem Bono í U2 var front maður fyrir. Við skuldum þessum þjóðum að við látum ekki þjóðirnar sem hnepptu þau í þennan þrældóm og hafa með því svellt milljónir og milljarða barna í hel......hneppa okkur í þrældóm líka. Ef við sleppum við að borga, opnar það smugu fyrir þau að hætta að borga. Svo mikilvægt er okkar hlutverk, og ófyrirgefanlegt að bregðast því núna, og erum við þá persónulega ábyrg fyrir sveltandi Afríkubúum og höfum með því að taka á okkur óréttlátar skuldir lagt persónulega blessun íslensku þjóðarinnar yfir meðferðina á okkar minnstu bræðrum meðal þjóða heims.

Að lokum skal hafa í huga að Þroskastríðið er ekki á enda. Bretar hafa arðrænt þjóðir heims hvað mest allra þjóða og heiminum blæðir enn undan heimsvaldastefnu þeirra. Þeir hafa lengi ásælst auðlindir okkar.

Frelsi - Jafnrétti - Bræðralag!

Á lykiltímum í veraldarsögunni þýðir ekki að hugsa smátt...Ísland verður að rísa undir hlutverki sínu.....

Lykillinn (IP-tala skráð) 10.12.2010 kl. 02:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband