Rétt mat hjá Jóni!

Þetta er laukrétt hjá sjávarútvegsráðherranum..við erum í fullum rétti með að veiða makríllinn innan okkar lögsögu...ætla skotar kannski að stoppa veiðarnar með því að senda skip frá Skotlandi inn í lögsögu Íslands..meira ruglið.

Mæli eindregið með því að halda veiðum áfram..og skapa gjaldeyri fyrir þjóðarbúið...þetta er það sem lyftir okkur upp úr efnahagsdýfunni.


mbl.is Í fullum rétti til makrílveiða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingvi Rúnar Einarsson

Jón Bjarnason leynir á sér.

Ingvi Rúnar Einarsson, 26.8.2010 kl. 21:46

2 Smámynd: Árni Björn Guðjónsson

Hann reitir þá til reiði í ESB.

Árni Björn Guðjónsson, 26.8.2010 kl. 21:53

3 identicon

Jafn gott að Össur sé ekki sjávarútvegsráðherra. Hann hefði farið með flottrollin í handfaringrinum út og afhent Bretum/Skotum veiðarfærin og fiskiskipin að gjöf, bara til að eigja von á að komast inn í ESB. Þjóðin og ríkisstjórnin stendur jú "þétt á bakvið aðildarumsókn" eins og evrópuskoffínið komst svo skemmtilega að orði við stækkunarstjórann.

joi (IP-tala skráð) 26.8.2010 kl. 21:57

4 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Okkur varðar ekkert um ESB..hugsum um okkur fyrst og fremst!

Ægir Óskar Hallgrímsson, 26.8.2010 kl. 21:57

5 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Það er eins og menn segja.."réttur maður í brúnni"!!

Ægir Óskar Hallgrímsson, 26.8.2010 kl. 21:58

6 identicon

Rányrkja á flökkustofnum hefur aldrei verið vel séð og efast ég um að gullgrafaraæðið í kringum makrílinn sem nú hefur gripið um sig í á meðal félagsmanna LÍÚ sé happadrjúgt fyrir þjóðina í heild sinni.

En eftir sem áður halda menn áfram að verja þessa sérhagsmunaseggi sem sett hafa þjóðina á hausinn á ca 15-20 ára fresti. Spunadeild LÍÚ fær prik í kladdann fyrir flott PR starf, það má hún eiga.

Jón Sigurðsson (IP-tala skráð) 26.8.2010 kl. 22:24

7 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Rányrkja á flökkustofnum...hvaða bull er þetta...og hvað með það að þetta heiti flökkustofn..hann er í íslenskri lögsögu..þar sem íslensk skip veiða sinn fisk..og makríll er ein af þessum tegundum.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 26.8.2010 kl. 23:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband