Við erum að gera rétt!!

Þetta fer að verða farsi..fyrst komu hótanir frá Írum..og svo hótuðu Englendingar og Frakkar löndunarbanni á Íslensk skip í erlendum höfnum.

Og svo komu skotarnir..og lýsa okkur ásamt Færeyingum sem algerum víkingum..sem rupla og ræna..

Hvernig stendur á því að við íslendingar getum verið að hnupla og ræna eitthvað sem er í okkar lögsögu??

Og hvað með það að þetta gæti skaðað aðildina að ESB..ég segi fínt, höldum áfram þessum veiðum á makríl, sem er okkar fiskur..í okkar lögsögu, svo við komum algerlega í veg fyrir aðild að ESB.

c_jonas_vi_ar_desktop_skopmyndir_fanar_esb_fani_nammi_ossur_200


mbl.is Financial Times fjallar um makríldeiluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Rányrkja á flökkustofnun hefur aldrei verið vel séð.

Kannski lærum við mannasiði einhvern daginn en það er því miður ekki í bráð.

Jón Sigurðsson (IP-tala skráð) 24.8.2010 kl. 23:47

2 identicon

Flökkustofnum átti þetta að vera.

Jón Sigurðsson (IP-tala skráð) 24.8.2010 kl. 23:48

3 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Rányrkja...þó að þetta sé flökkustofn..er hann kominn í íslenska lögsögu..og þá ber okkur að veiða, svo ekki sé minnst á hvað þetta étur??

Ægir Óskar Hallgrímsson, 24.8.2010 kl. 23:50

4 identicon

Svo ekki sé minnst á að Íslandi og Færeyjum var ekki einu sinni hleypt að samningarborðum þegar Evrópusambandið og Noregur voru að ákveða kvóta.

Brynjar Björnsson (IP-tala skráð) 25.8.2010 kl. 00:43

5 identicon

Íslendingar eru að haga sér eins og það sem þeir eru, þjófar og ræningjar í þessu makrílmáli. Er nema von að siðmenntuðum þjóðum ofbjóði svona framkoma?

Serafina (IP-tala skráð) 25.8.2010 kl. 05:20

6 identicon

Íslendingar gera alltaf rétt. Það er nú bara ein af staðreyndu lífsins. Ég skil ekkert í þessum útlendingsfíflum sem eru ekki til í að gefa okkur fullt af kvóta. Og ekki hlustum við nú á slíkt kvabb -- því að við erum jú að gera rétt.

Pétur (IP-tala skráð) 25.8.2010 kl. 06:00

7 identicon

Víkingar eru töff. Við erum komin af víkingum og það gerir okkur kúl! það er ekki hægt að rökræða gegn því og þetta er ekki flóknara en það....sama hvað sumir af okkar innanlandsfávitum segja.

Við erum fokking svöl!

áfram Ísland!

Egill (IP-tala skráð) 25.8.2010 kl. 06:37

8 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Sá eini sem stundar rányrkju í hafinu er makríllinn sjálfur, hann étur allt sem er ekki stærra en hann sjálfur. Þess vegna er nauðsynlegt að veiða hann til að koma í veg fyrir að hann éti upp t.d. þorskseiðin okkar. Sama gildir um hvalveiðar, og ef það verður til þess að halda okkur utan ESB: glæsilegt!

Guðmundur Ásgeirsson, 25.8.2010 kl. 10:39

9 Smámynd: Atli Hermannsson.

Það er alveg magnað hvað margir eru illa að sér um sjávarútvegsmálin og allt sem þeim tengist. Bara þetta að við megum veiða allt sem inn í lögsöguna kemur. Þá bæði hrygnir og eyðir makríllinn nær allri sinni æfi innan lögsagna annarra ríkja. Hér er hann rétt nýlega farinn að láta sjá sig og stoppar kannski rétt yfir sumarið og fer svo aftur á vetrastöðvar sínar. Þar hefur hann verið nýttur af útgerðum... sem eru bara útgerðir líkt og okkar. Þessar erlendu útgerðir hafa t.d verið að taka á sig skerðingar undanfarin ár og finnst eðlilega ansi blóðugt að þá skulu hann vera veiddur hér loks þegar stofninn er farinn að braggast.

Þetta með að makríllin éti svo mikið "frá okkur" er bara ekki fyndið. Hefur það annars haldið fyrir okkur vöku hvar loðnan heldur sig hvað hún er að eta þegar hún er ekki innan landhelginnar. Sama með norsk - ísl síldina og úthafskarfann...Ég væri brjálaður ef ég væri skoskur útgerðarmaður, því ekki er bara verið ð veiða úr stofni sem þeir hafa mikið stólað á, heldur mun Íslenski flotinn herja á þeirra mörkuðum... og ef ég þekki þá rétt undirbjóða og eyðileggja fyrir þeim...Stoltir Íslendingar eins og fyrri daginn.

Atli Hermannsson., 26.8.2010 kl. 21:04

10 identicon

Serafina, þú ert Íslendingur og veist sennilega um hvað þú ert að skrifa?

En ég biðst undan að vera talin með þér í hópi þjófa og ræningja.

Hvernig er það, hvaðan fáið þið það að við stundum rányrkju, þó við veiðum þennan fisk. Er hann í útrýmingarhættu?

Sigrún Jóna (IP-tala skráð) 27.8.2010 kl. 20:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband