Svona virkar lýðræðið!!

Þetta er bara svona sem lýðræðið virkar..ég var ekki á fundinum, en reikna með því að kosið hafi verið um þessa ályktun....en athyglisvert sem Ragnheiður segir....

"Ég hefði talið að Sjálfstæðisflokkurinn þyrfti á öllu öðru að halda núna en að sundra fólki. Ég er ekki að ætlast til þess að fólk fari frekar á mína skoðun heldur en ég á þeirra, en ég held að minn flokkur þurfi á ýmsu öðru að halda núna heldur en sundrungu,“ segir Ragnheiður.

Ég bara spyr á móti...er það ekki algerlega geggjað að huga að ESB..þegar evran og ESB er að sundrast..Íslenska krónan er mun sterkari en þessi evra...málið er bara það að stjórnmálastéttin er gersamlega búinn að reyna að skemma krónuna..með lélegum vinnubrögðum á þingi.

Við höfum bara ekki nógu hæft fólk til þess að reka rekstrarfélagið Ísland..þetta land er mjög illa rekið.


mbl.is Óþarfi að sundra flokksmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég hef aldrei skilið hvað þessi vinstrisinnaða kona er að gera í Sjálfstæðisflokknum. Samfylkingin hlýtur að taka fagnandi á móti henni og hennar 5 herdeilar liði.

Guðmundur Ingi Kristinsson (IP-tala skráð) 26.6.2010 kl. 23:40

2 identicon

Miðað við þessi rök sem þið eruð margir að segja "svona virkar lýðræðið, meirihlutinn ræður", þá má benda á það líka að það var meirihluti á þingi fyrir umsókn.

En annars finnst mér fáránleg alhæfing að evrópusinnar eru vinstrisinnar, þar er mikill misskilningur á ferð, ef eitthvað er eru það frekar íhaldsmenn sem ætti að kalla vinstrimenn. Það er frekr að þeir sem eru evrópusinnar séu frjálslyndir.

Eftir þennan hroka í mörgum íhaldsmönnum á landsfundinum vonast ég til þess að stofnaður verði nýr hægri flokkur sem höfðar vel til frjálslynda en ekki eins íhaldsmenn.

Hörður A. G. (IP-tala skráð) 27.6.2010 kl. 09:19

3 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Ég skil heldur ekki af hverju Sjálfstæðismenn séu kallaðir frjálshyggjumenn...þegar þessi flokkur hefur einna mest ýtt undir sósíalisma.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 27.6.2010 kl. 13:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband